Þú ert nýbúinn að missa vinnuna og konan reyndi að brenna þig lifandi inní hjólhýsi. En það gæti verið verra, sólin skín og fuglarnir syngja og ... hey þarf maður ekki bara smæla framan í heiminn þegar heimurinn sparkar í klofið á manni. Bjartsýnir Óskarar eru einstaklega brosmildir og alltaf tilbúnir að takast á við mótlæti.
Þú ert með einstaklega fallegar krullur sem fólk dáist af. Lionel Richie er margoft búinn að lýsa því yfir í fjölmiðlu að hann gæfi allt fyrir krullurnar þínar. Þú notar ekki Pantene ProV eða svoleiðis sorp í hárið á þér heldur einungis hágæða vörur frá Kólumbíu. Krullurnar eru mikilvægasti líkamsparturinn og áttu það til að ganga með regnhlíf til að verja þær sólarljósi.